Bygg
Bygg

Íþróttir

Jóhann gerði 18 stig í tapleik
Laugardagur 15. júlí 2006 kl. 11:34

Jóhann gerði 18 stig í tapleik

Jóhann Árni Ólafsson, leikmaður körfuknattleiksliðs Njarðvíkinga, gerði 18 stig og tók 12 fráköst í gær þegar íslenska U 20 ára landsliðið steinlá gegn Hollendingum 58-99 í Evrópukeppninni í Portúgal.

 

Jóhann var eini leikmaður liðsins sem var að sýna sitt rétta andlit en það dugði skammt þar sem Hollendingar gerðu nánast út um leikinn í fyrsta leikhluta. Staðan að loknum 1. leikhluta var 14-35 Hollendingum í vil.

 

Næsti leikur liðsins er í dag kl. 13:00 að íslenskum tíma þegar U 20 liðið mætir Georgíumönnum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn