Jóhann braut blað í borðtennissögunni
„Ég held ég hafi sofið brosandi í alla nótt,“ sagði Jóhann Rúnar Kristjánsson, borðtenniskappi, í samtali við VF í morgun þegar hann lýsti líðan sinni eftir árangur helgarinnar en hann gerði sér lítið fyrir og sigraði í 1. flokki á Íslandsmótinu í borðtennis í keppni fyrir ófatlaða. „Það er svakalega gott kikk sem fylgir þegar uppskeran er svona góð af því sem maður hefur sáð,“ segir Jói sem hefur æft grimmt að undanförnu og segist vera í sína allra besta formi. Hann undirbýr sig nú fyrir stórmót á erlendri grund á næstunni með Evrópumótið sem æðsta markmið þar sem hann ætlar sér helst ekkert minna en vinningssæti.
Þetta er í fyrsta skipti í sögu borðtennis á Íslandi sem fatlaður einstaklingur vinnur Íslandsmeistarasæti í 1. flokki. „Þetta er eitthvað sem á að vera mjög erfitt en greinilega mögulegt. Fyrir mig var þetta gríðarleg áskorun, eitthvað sem ég hef hugsað um og haft að markmiði lengi. Þó kannski meira í draumi en alvöru,“ segir Jói að vonum kampakátur yfir þessum frábæra árangi. Hann segir að þessi draumur hafi undanfarna mánuði færst nær raunveruleikanum eftir góðan árangur á stigamótunum þar sem hann náði öðru og þriðja sæti í keppni fyrir ófatlaða.
„Ég hef verið duglegur að keppa í mótunum hér heima til að ná mér í reynslu og getu fyrir stóru markmiðin á mótunum erlendis,“ útskýrir Jói aðspurður um það sem framundan er. Hann stefnir ótrauður á Evrópumeistraramótið á Ítalíu í sumar og stefnir á hámarksárangur þar eða ekkert minna en vinningssæti. Áður en að því kemur keppir hann á stórum mótum í Búdapest og Slóvakíu en bæði mótin eru hugsuð sem undirbúningur fyrir Evrópumeistaramótið. Hugsanlega mun hann einnig hafa viðkomu í æfingabúðum í Danmörku.
„Evrópumótið er sterkasta mótið í dag, að ég hygg. Þar eru sterkustu spilararnir, sem margir hverjir keppa t.d. ekki á Ólympíuleikunum, þó það sé stærsta og flottasta mótið.
Ég stefni á verðlaunasæti og helst að taka titilinn. Frakkinn sem sigraði á Ólymíuleikunum nú síðast er sá sami og ég sigraði tveimur mótum áður, þannig að vissulega geri ég mér væntingar. Ef maður hittir á góðan dag, er vel upplagður og dagsformið gott, þá er þetta góður möguleiki, engin spurning,“ sagði Jóhann.
---
Mynd:Jóhann Rúnar Kristjánsson, borðtenniskappi, fagnaði Íslandsmeistaratitli um helgina í keppni fyrir ófatlaða.