Jóhann Birnir í leikmannahópi Keflavíkur í kvöld
Jóhann Birnir Guðmundsson verður í leikmannahópi Keflavíkur sem mætir Breiðabliki í bikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld. Jóhann skrifaði í gærkvöldi undir þriggja ára samning við Keflavík en hann gengur til liðs við Keflavík frá GAIS í Svíþjóð.
Jóhann Birnir þekkir vel til í herbúðum Keflavíkur en þar lék hann m.a. áður en hann hélt utan til atvinnumennsku árið 1997.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi