Jóhann Árni ósáttur við leikbannið
Eins og við greindum frá í morgun þá var Jóhann Árni Ólafsson dæmdur í eins leiks leikbann fyrir að vera vísað úr húsi í leik Grindavíkur og Stjörnunnar í síðustu umferð í Dominos-deild karla í körfuknattleik. Jóhann fékk dæmda á sig tvær tæknivillur í leiknum, þá síðari fyrir kjaftbrúk sem varð til þess að honum var vísað úr húsi.
„Hrikalega svekkjandi að vera hent út úr húsi fyrir “kjaftbrúk” sem var orðrétt “Hvernig gat þetta ekki verið villa”, mín fyrstu orð í garð dómara leiksins í þessum leik og ekki sagt í háum tón,“ segir Jóhann Árni á Facebook síðu sinni.
„Þetta kom í kjölfarið á mjög grófu broti sem er algjörlega ótrúlegt að dómarinn hafi ekki séð. Ekki nóg með að hann hafi gert mistök og ekki séð þetta augljós brot, þá þarf að gefa tæknivillu. Tvær tæknivillur eru oftast áminning frá aganefnd nema um ofbeldi sé að ræða, mjög slæm hegðun eða endurtekið brot. Hrikalega gróf og svekkjandi refsing fyrir jafn lítið brot.“
Jóhann Árni mun missa af leik Grindavíkur gegn KR í Röstinni annað kvöld. Um mikilvægan leik er að ræða en Grindvíkingar eru í efsta sæti deildarinnar með 28 stig þegar fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni.