Jóhann Árni í atvinnumennsku
Njarðvíkingurinn Jóhann Árni Ólafsson er genginn til liðs við þýska liðið Provero Merlins. Frá þessu er greinir Karfan.is en Jóhann gerði eins árs samning við liðið og leikur með liðinu á næsta tímabili. Brotthvarf Jóhanns er mikil blóðtaka fyrir Njarðvíkinga en liðið hefur misst marga lykilleikmenn að undanförnu.
Peoevo Merlins leikur í þriðju efstu deild Þýskalands en deildin hefst í október og lýkur seint í apríl.
VF-MYND/JBÓ: Jóhann hefur ákveðið að söðla um og leikur í Þýskalandi á næsta tímabili.