Jarryd Cole sá um Fjölni
Keflavík tryggði sér áframhaldandi keppnisrétt í Powerade bikarnum í gærkvöldi með öruggum sigri á Fjölni í Grafarvoginum 83- 102. Keflavík leiddi allan leikinn og gaf hvergi eftir með sterkum varnarleik og yfirburðamann, Jarryd Cole í fararbroddi. Jarryd Cole var bókstaflega óstöðvandi undir körfunni í leiknum og skoraði 35 stig, hirti 13 fráköst með 63% nýtingu sem getur ekki talist slæmt.
Keflavík tók strax af skarið og höfðu frumkvæðið á fyrstu mínútum leiksins. Varnarleikur Keflvíkinga skilaði sínu og gestirnir höfðu 10 stiga forskot eftir fyrsta leikhluta, 17-27. Keflvíkingar héldu uppteknum hætti í öðrum leikhluta og tókst að loka á flesta sóknarmöguleika Fjölnis. Þegar 8 leikmenn Keflavíkur voru komnir á blað um miðbik annars leikhluta höfðu aðeins þrír leikmenn skorað stig fyrir Fjölni. Jón Sverrisson fór þá fyrir sínum mönnum á meðan illa gekk hjá öðrum leikmönnum liðsins að finna glufur á sterkri vörn Keflavíkur. Þegar flautað var til hálfleiks höfðu Keflvíkingar náð 18 stiga forskoti, 35-53.
Stigahæstur í liði Keflavíkur í hálfleik var Jarryd Cole með 20 stig en næstir voru það Charlie Parker með 9 stig og Magnús Gunnarsson með 6 stig. Hjá Fjölni var Jón Sverrisson stigahæstur með 15 stig en næstir voru Nathan Walkup með 10 stig og Calvin O'Neal með 5 stig.
Fjölnismenn freistuðu þess að pressa á Keflvíkinga í þriðja leikhluta sem reyndist þeim þó ekki mjög vel. Keflvíkingar skoruðu 20 stig á heimamenn á fyrstu 7 mínútum leikhlutans og munurinn á liðunum var 25 stig, 50-75. Fjölnismönnum tókst lítið að rétta sinn hlut á lokamínútum leikhlutans og þegar einn leikhluti var eftir munaði 24 stigum, 58-82.
Fjölni tókst að minnka muninn á fyrstu mínútum fjórða leikhluta og munurinn var kominn niður í 17 stig þegar rúmar þrjár mínútur voru liðnar, 67-84. Fjölnir hafði þá skorað 9 stig gegn fyrstu 2 stigum Keflavíkur. Þessi góði kafli heimamanna endist þó ekki nógu lengi og Keflvíkingar hleyptu þeim ekki nær. Yngri leikmenn fengu að spreyta sig á lokakaflanum hjá báðum liðum og úrslitin ráðin. Keflavík hafði á endanum 19 stiga sigur, 83-102.
Keflavík: Jarryd Cole 35/13 fráköst, Charles Michael Parker 17/10 fráköst/7 stoðsendingar, Magnús Þór Gunnarsson 15/5 fráköst/6 stoðsendingar, Halldór Örn Halldórsson 13/5 fráköst, Almar Stefán Guðbrandsson 8/6 fráköst, Valur Orri Valsson 7/5 stoðsendingar, Sigurður Friðrik Gunnarsson 3, Gunnar H. Stefánsson 3
Umfjöllun Karfan.is