Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Jakob tekur við Þrótti Vogum
Þriðjudagur 16. október 2007 kl. 21:23

Jakob tekur við Þrótti Vogum

Í kvöld skrifaði Jakob Már Jónharðsson undir eins árs samning við knattspyrnudeild Þróttar Vogum um þjálfun meistaraflokks félagsins. Þróttur hefur ákveðið að senda lið til þátttöku í  Íslandsmóti á nýjan leik eftir nokkura ára fjarveru.

 

Jakob Már sem er 36 ára, á að baki farsælan feril sem leikmaður og spilaði hann meðal annars með Keflavík og Val í efstu deild karla ásamt því að hafa reynt fyrir sér sem atvinnumaður erlendis. Jakob var aðstoðarþjálfari Keflavíkur árið 2004 þegar liðið varð bikarmeistari og nú seinast þjálfaði hann fyrstudeildar lið Reynis úr Sandgerði.

 

Knattspyrnudeild Þróttar lýsir yfir mikilli ánægju að fá Jakob til starfa og eru bundnar miklar vonir við störf hans segir í fréttatilkynningu frá Þrótti. Knattspyrnudeildin skrifaði einnig undir tveggja ára samstarfssamning við aðalstyrktaraðila liðsins, byggingaverktakann Markhús.

 

Mynd: Frá vinstri til hægri: Markús eigandi Markhúsa, Marteinn Ægisson formaður knattspyrnudeildar Þróttar og Jakob Már Jónharðsson nýráðinn þjálfari Þróttar.

 

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024