Jafntefli í Keflavík
Keflavík og Fylkir mættust á HS orkuvellinum í gær. Leikurinn var báðum liðum mikilvægur en bæði Keflavík og Fylkir eru nálægt fallsvæðinu. Eftir að hafa lent undir snemma í leiknum náðu Keflvíkingar að knýja fram jafntefli skömmu fyrir leikslok.
Fylkismenn höfðu tögl og hagldir í fyrri hálfleik og komust yfir á 15. mínútu en Keflvíkingar höfðu orðið fyrir áfalli snemma leiks þegar fyrirliði þeirra, Magnús Þór Magnússon, þurfti að fara meiddur af velli (8').
Það vantaði talsvert upp á gæðin í leik Keflvíkinga í gær, mikið andleysi í gangi og sendingar gengu illa milli manna. Fylkismenn voru mikið ákveðnari, sneggri og þeir stjórnuðu leiknum framan af en í seinni hálfleik náði Keflavík að jafna leikinn. Þar var að verki Oliver James Kelaart Torres (81'') sem hafði komið inn á þremur mínútum fyrr. Markið kom eftir mikið klafs fyrir framan mark Fylkis og eftir að markvörður þeirra missti boltann var Torres réttur maður á réttum stað og náði að pota boltanum inn fyrir línuna.
Keflvíkingar hresstust talsvert við markið og gengu sóknir á víxl síðustu mínúturnar, sigurinn hefði getað fallið hvoru megin en fleiri urðu mörkin ekki og jafntefli því niðurstaðan.

Keflavík, Stjarnan, Fylkir, HK og ÍA sitja í neðstu sætum deildarinnar og munar aðeins fimm stigum á Keflavík, sem er í áttunda sæti með sautján stig, og ÍA, sem er á botninum með tólf stig. Keflavík og Stjarnan eiga þó bæði leik til góða.
Fleiri myndir eru í myndasafni neðst í fréttinni en Jóhann Páll Kristbjörnsson, ljósmyndari Víkurfrétta, fylgdist með leiknum í gær.