Jafntefli í Grindavík
Grindavík tók á móti KR í blíðaskaparveðri í dag í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Völlurinn í Grindavík var töluvert blautur eftir mikla rigningu í gær og undanfarin misseri og lauk leiknum með 1-1 jafntefli liðanna en bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Grindavík gerði enga breytingu á liði sínu eftir síðasta leik gegn nágrönnum sínum úr Keflavík. Á 14. mínútu skoraði René Joensen fyrir Grindavík eftir stoðsendingu frá Will Daniels. KR jafnaði síðan leikinn á 27. mínútu með marki frá Pálma Rafni Pálmasyni og sótti KR töluvert að marki Grindavíkur eftir það í fyrri hálfleik.
Í seinni hálfleik sóttu bæði lið en það bar engan árangur, Marínó Axel Helgason, leikmaður Grindavíkur meiddist á 58. mínútu og Nemanja Latinovic kom inn á í hans stað. Sam Hewson fékk að líta gula spjaldið á 59. mínútu og Grindavík gerði aðra skiptingu á 63. mínútu þegar René Joensen fer meiddur út af og Matthías Örn Friðriksson kom inn á í hans stað. Brynjar Ásgeir Guðmundsson fékk síðan gult spjald á 78. mínútu og Grindavík gerði sína síðustu skiptingu í leiknum á 79. mínútu þegar Juenma Ortiz kom inn á fyrir Jóhann Helga Hannesson. Juanma Ortiz fékk gult spjald á 90. mínútu.
Leiknum lauk með 1-1 jafntefli liðanna og fjögur stig komin í hús hjá Grindavík. Hægt er að sjá viðtöl eftir leik á Facebook síðu Víkurfrétta og Hilmar Bragi, blaðamaður Víkurfrétta tók meðfylgjandi myndir á leiknum í dag.
Sjá viðtöl neðst í fréttinni.