Jafntefli hjá Keflavík, Grindavík tapar

KA-menn náðu þriggja marka forskoti gegn Keflavík í fyrri hálfleik þar sem Jóhann Þórhallsson, Hreinn Hringsson og Pálmi Rafn Pálmason skoruðu mörkin. Keflvíkingar voru hins vegar ekki af baki dottnir og unnu muninn upp með mikilli seiglu. Hörður Sveinsson skoraði eitt mark og Ingvi Rafn Guðmundsson tvö.