Jafntefli á Sparisjóðsvellinum gegn FH á nýju grasi
Keflvíkingar gerðu í kvöld 1-1 jafntefli gegn FH í 10. umferð Pepsi deildar karla. Leikurinn var sá fyrsti sem spilaður er á Sparisjóðsvellinum í ár og var góð stemming á meðal þeirra 2170 áhorfenda sem mættu á völlinn.
Gestirnir voru töluvert sterkari á fyrstu mínútum leiksins og áttu þeir nokkrar hættulegar sóknir. Eftir um tuttugu mínútna leik var þó aðeins farið að lifna yfir leik Keflvíkinga og á 28. mínútu kom Guðmundur Steinarsson þeim yfir. Eftir gott spil upp kantinn þrumaði hann boltanum á Gunnlaug í markinu sem missti boltann klaufalega í netið, staðan því orðin 1-0 og fyrsta mark sumarsins á Sparisjóðsvellinum komið í hús. Sex mínútum síðar fengu Keflvíkingar dæmda á sig vítaspyrnu þegar Bjarni Hólm Aðalsteinsson gerðist brotlegur er hann reyndi að stöðva Atla Guðnason, leikmann FH, í teignum. Tommy Nielsen fór á punktinn og þrumaði boltanum hátt yfir markið. Á 45. mínútu vildu FH-ingar fá aðra vítaspyrnu þegar Einar Orri Einarsson, leikmaður Keflvíkinga, fékk boltann í hendina inn í teig. Dómarinn var þó ekki sammála og lét leikinn halda áfram. Þegar liðin gengu til búningsherbergja var staðan 1-0.
FH-ingar voru ákveðnari aðilinn á vellinum í byrjun seinni hálfleiks líkt og í þeim fyrri. Þeir sköpuðu sér nokkur ágætis færi en tókst þó ekki að koma knettinum fram hjá Ómari í marki Keflavíkur. Á 55. mínútu áttu Keflvíkingar skyndisókn, Magnús Sverrir Þorsteinsson kom sér í ágætis skotfæri en boltinn sveif rétt yfir tréverkið. Það var síðan Ólafur Páll Snorrason sem jafnaði metin fyrir FH á 61. mínútu með góðu skoti fyrir utan teig. Eftir þetta lifnaði heldur betur yfir leiknum og skiptust liðin á að eiga hvert dauðafærið á eftir öðru. Á 64. mínútu björguðu Keflvíkingar á marklínu eftir skalla frá Atla Viðari Björnssyni, Keflvíkingar náðu boltanum og spiluðu sig upp völlinn. Magnús Sverrir Þorsteinsson komst einn á móti Gunnleifi í markinu en honum tókst að verja glæsilega. Keflvíkingar áttu góð færi síðasta korterið en á heildina litið voru gestirnir betri í þessum leik. Lokatölur því 1-1 á Sparisjóðsvellinum í kvöld.
Eftir leikinn í kvöld sitja Keflvíkingar í öðru sæti deildarinnar með 19 stig, aðeins einu stigi á eftir ÍBV en þessi lið mætast einmitt í Vestmanneyjum á fimmtudaginn.
„Þeir voru meira með boltann og mér fannst við ekki sjálfum okkur líkir í fyrri hálfleik. En við börðumst gríðarlega vel og ég er stolltur af liðinu fyrir baráttuna og vinnusemina. Við fengum tækifæri til að spila hraðar sóknir og sköpuðu fullt af góðum færum. Við fengum betri færi en þeir þó að þeir hafi verið meira með boltann þannig að við hefðum alveg getað klárað þennan leik,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur eftir leikinn í kvöld.
„Við berum mikla virðingu fyrir FH en við gerum það líka fyrir okkur hér í Keflavíkurliðinu og við ætluðum svo sannarlega að landa sigri hérna og klára toppsætið, það voru alveg forsendur til þess, tvisvar stöður maður á móti markmanni þar sem Gulli ver frábærlega og svo tvö þrjú önnur dauðafæri og það er auðvitað það sem skilur á milli. Ef við nýtum ekki færin náum við ekki öllum stigunum,“ sagði Willum en undir hans stjórn hefur Keflavík leikið 10 leiki í deildinni og aðeins tapað einum leik á útivelli og er í toppbaráttunni.
Í Frostaskjólinu töpuðu Grindvíkingar gegn KR, 1-0. Sigurmarkið kom strax á 13. mínútu en það skoraði Bjarni Guðjónsson með föstu skoti af um tuttugu metra færi. Eftir leikinn sitja Grindvíkingar í 11. sæti deildarinnar, tveimur stigum á undan Haukum sem eiga leik til góða. Næsti leikur Grindavíkur er gegn Selfossi í Grindavík fimmtudaginn 8. júlí og hefst sá leikur klukkan 19:15.
VF-myndir og texti/Sölvi Logason
.