Jafnt á Akureyri
Fallbaráttan gríðarlega spennandi
Keflvíkingar sóttu stig norður til Akureyrar þegar þeir gerðu 2-2 jafntefli gegn Þór í Pepsi-deild karla í dag. Heimamenn komust yfir eftir 15 mínútur en Bojan Stefán Ljubicic jafnaði fyrir Keflvíkinga skömmu áður en flautað var til leikhlés.
Þórsarar áttu mögleika að ná forystu aftur þegar þeir fengu vítaspyrnu en Ómar Jóhannsson varði vel í markinu. Það var svo Jóhann B. Guðmundsson sem kom Keflvíkingum yfir þegar tæpar 10 mínútur voru til leiksloka. Aftur fengu Þórsarar vítaspyrnu við litla hrifningu Keflvíkinga. Úr henni skoruðu þeir og endaði leikurinn því með 2-2 jafntefli.
Eftir leikinn eru Keflvíkingar í 8. sæti deildarinnar með 21 stig. Mikil spenna er fyrir tvær síðustu umferðirnar. Keflvíkingar eiga eftir að leika gegn ÍBV og Breiðablik.