Bygg
Bygg

Íþróttir

Íþróttaþjálfarar fjölmenna á námskeið hjá Keili
Föstudagur 11. september 2009 kl. 16:04

Íþróttaþjálfarar fjölmenna á námskeið hjá Keili

Um hundrað íþróttaþjálfarar sóttu 2ja daga námskeið hjá Keili í hraða- og viðbragðsþjálfun íþróttamanna dagana 4. og 5. september í íþróttahúsinu á Ásbrú. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Lee Taft, einn fremsti hraðaþjálfari Bandaríkjanna.

Bílakjarninn
Bílakjarninn
 

Þátttakendur voru á eitt um það að námskeiðið hafi farið fram úr fremstu væntingum og að Lee hafi gefið þeim margar hugmyndir til að betrumbæta þjálfun sína íþróttamanna. Lee leggur mikið uppúr að þjálfarar líkamsstöðu- og hreyfigreini íþróttamenn sína. Komi í ljós að leikmaður sé í vöðvaójafnvægi eða vanti uppá stöðuleikaþjálfun þá sé mjög brýnt þjálfunin sé miðuð að því að leiðrétta þá veikleika. Annars er leikmaðurinn í mun meiri hættu á að meiðast.

 

Keilir hefur boðið Lee Taft að koma aftur í mars 2010 og mun hann þá kenna við ÍAK íþróttaþjálfarann sem hefst í janúar n.k. hjá Keili.

www.asbru.is