Íþróttamenn Brimfaxa valdir í fyrsta sinn
- Aldís og Sylvía sól urðu hlutskarpastar.
Íþróttamaður Brimfaxa var valinn í fyrsta sinn í ár og voru verðlaunin afhent á aðalfundi félagsins þann 22. október. Í þetta sinn voru tvær stúlkur úr unglingaflokki valdar, þær Aldís Gestsdóttir og Sylvía Sól Magnúsdóttir. Þetta kemur fram á vef Grindavíkurbæjar.
Þær hafa keppt á allnokkrum opnum mótum fyrir Brimfaxa á árinu í fjórgangi og tölti. Með dugnaði og metnaði hafa þær farið vaxandi með hverju móti og verið félagi sínu til sóma og fyrirmyndar. Verðlaunin voru glæsilegir áritaðir glerplattar og verslunin Hestar og menn gáfu höfuðleður, nasamúl og buff.