Íþróttamaður Sandgerðis 2015 kjörinn á laugardaginn
- Viðurkenning frístunda-, forvarna- og jafnréttisráðs afhent á sama tíma.
Kjöri íþróttamanns Sandgerðis verður lýst í Samkomuhúsinu í Sandgerði á laugardaginn 5. mars. Athöfnin hefst kl. 14:00. Við sama tækifæri verður afhent viðurkenning frístunda-, forvarna- og jafnréttisráðs fyrir störf að íþrótta- og æskulýðsmálum.
Tónlistaratriði og veitingar verða í boði og bæjarbúar eru hvattir til að mæta og gera viðburðinum hátt undir höfði, segir í tilkynningu.