Íþróttamaður og kona ársins í Grindavík
Hið árlega kjör á íþróttamanni- og konu ársins fer fram Í Saltfisksetrinu á gamlársdag klukkan 13:00. Í ár verður fyrirkomulag kjörins með nýjum hætti og unnið samkvæmt nýjum verklagsreglum sem hafa verið samþykktar bæði af íþrótta- og æskulýðsnefnd og aðalstjórn UMFG. Kjörið er samstarfsverkefni þessara aðila.
Rétt til að tilnefna hafa allar deildir UMFG sem og íþróttafélög í Grindavík sem eru aðilar að Íþróttabandalagi Suðurnesja. Jafnframt verða veitt verðlaun fyrir þá sem léku sína fyrstu landsleiki á árinu, Íslandsmeistarar ársins verða heiðraðir og öllum deildum innan UMFG og íþróttafélögum í Grindavík sem eru innan ÍS er heimilt að tilnefna einn ungling sem hlýtur svokölluð hvatningarverðlaun Afrekssjóðs Grindavíkur og UMFG og verður það tilkynnt við kjörið. Þessu er greint frá á heimasíðu UMFG.
Eftirfarandi íþróttafólk hefur verið tilnefnt af sínum félögum fyrir árið 2010.
Knattspyrnudeild
Gilles Mbang Ondo
Jósef Kr. Jósefsson
Körfuknattleiksdeild
Páll Axel Vilbergsson
Guðlaugur Eyjólfsson
Sunddeild
Hilmar Örn Benediktsson
Golfklúbbur
Davíð Arthur Friðriksson
Júdódeild
Björn Lúkas Haraldsson
Íþróttafélag Grindavíkur (ÍG)
Bergvin Ólafarson
Taekwondódeild
Björn Lúkas Haraldsson
ÍÞRÓTTAKONA ÁRSINS
Knattspyrnudeild
Sarah MacFadden
Anna Þórunn Guðmundsdóttir
Körfuknattleiksdeild
Helga Hallgrímsdóttir
Berglind Magnúsdóttir
Golfklúbbur
Fanný Erlingsdóttir
Sunddeild
Erla Sif Arnardóttir