Íþróttafólk í Reykjanesbæ heiðrað á gamlársdag
Íþróttamaður Reykjanesbæjar og íþróttamenn hverrar íþróttagreinar fyrir árið 2010 verða útnefndir í hófi á síðasta degi ársins, þann 31. desember nk.
Hátíðin verður haldin í íþróttamiðstöðinni í Njarðvík og hefst stundvíslega kl. 13:00. Áætlað er að athöfnin taki um 1 klst.
Að venju verða allir Íslandsmeistarar Reykjanesbæjar 2010 heiðraðir. Þeir fá afhentan verðlaunapening með áletrun um meistaratignina frá Reykjanesbæ.
Heiðursverðlaun íþróttahreyfingarinnar árið 2010 verða afhent við sama tækifæri.
Hátíðin er opin öllum bæjarbúum og tilvalið fyrir fjölskyldur að kíkja við á þessum síðasta degi ársins.