Íþróttafólk heiðrað í Vogum, Suðurnesjabæ og Grindavík
Vogar:
Afhending viðurkenninga fyrir Íþróttamann ársins og sjálfboðaliða ársins í Vogum, ásamt hvatningaverðlaunum ársins 2025, fer fram þriðjudaginn 6. janúar 2026 klukkan 17:00 í Tjarnarsal, veislusal Stóru-Vogaskóla.
Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga stendur að viðburðinum og eru allir íbúar hjartanlega velkomnir að mæta og fagna með verðlaunahöfum.
Suðurnesjabær:
Kjör um íþróttamann ársins 2025 í Suðurnesjabæ fer fram fimmtudaginn 8. janúar nk. klukkan 18:00 í sal Sandgerðisskóla. Við sama tilefni verður einnig veitt viðurkenning frá íþrótta- og tómstundaráði Suðurnesjabæjar.
Boðið verður upp á tónlistaratriði og veitingar og eru öll hjartanlega velkomin.
Grindavík:
Grindavíkurbær og UMFG heiðra íþróttafólk Grindavíkur fyrir afrek á árinu 2025 við hátíðlega athöfn í Gjánni laugardaginn 10. janúar klukkan 11:00. Öllum er boðið að mæta og fagna árangri öflugs íþróttafólks bæjarins.
Tilnefningar voru birtar í desember og hafa fimm íþróttakonur og fimm íþróttakarlar verið tilnefnd sem íþróttakona og íþróttamaður Grindavíkur 2025. Þá eru þrír þjálfarar tilnefndir sem þjálfari ársins og fjögur lið sem íþróttalið Grindavíkur 2025. Einnig verða veittar viðurkenningar fyrir Íslands- og bikarmeistaratitla og fyrstu landsleiki.
Í tengslum við daginn verður sundlaugin og íþróttasalirnir opnir kl. 12:00–17:00 og um kvöldið, kl. 18:00, tekur Grindavík á móti Aþenu í VÍS-bikar kvenna í körfubolta.



