Íþróttir

Íþróttafélögin á Suðurnesjum láta gott af sér leiða
Guðmundur Atli Helgason.
Miðvikudagur 29. nóvember 2017 kl. 11:02

Íþróttafélögin á Suðurnesjum láta gott af sér leiða

- Halda samstöðumót til styrktar Guðmundi Atla Helgasyni

Í nóvember 2015 greindist Guðmundur Atli Helgason með bráðahvítblæði aðeins 7 ára gamall. Við tók sjö mánaða ferli með lyfjagjöfum og veikindum sem Gummi eins og hann er kallaður tæklaði með jákvæðnina að vopni. Þann 3. september, fimmtán mánuðum seinna og Gummi ný orðinn níu ára endurgreindist hann með bráðahvítblæðið og hefur þegar lokið tveimur lyfjagjöfum. Gummi þarf því að fara til Svíþjóðar í frekari meðferð og mergskipti. Gummi hefur því á sinni stuttu ævi tekist á við marga erfiðleikana en 5 ára flutti hann ásamt systur sinni til ömmu sinnar og afa sem hafa staðið við hlið hans í gegnum allt saman.

Sunddeild ÍRB með söfnunarbauk á Aðventumóti
Börn á aldri við Guðmund ætla að sýna samstöðu og hafa íþróttadeilir á Suðurnesjum tekið höndum saman og ætla að halda samstöðumót til að styðja og styrkja Guðmund Atla.
Sunddeild ÍRB mun hefja leika með Aðventumótinu sínu sem haldið verður þann 29. nóvember nk. og hefst mótið klukkan 17:30,  söfnunarbaukur verður  á staðnum fyrir þá sem vilja taka þátt í að styðja við bakið á fjölskyldu Guðmundar Atla Helgasonar. Sundráð ÍRB sendir ekki jólakort í ár til stuðningsaðila og gefur andvirði kortanna þess í stað í þetta góða málefni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fjölmargar íþróttagreinar í Grindavík
Þann 3. desember nk. frá klukkan 14-16 verður keppt í fótbolta í Hópinu í Grindavík, þar verða lið frá öllum Suðurnesjum sem munu keppa innbyrðis. Í Mustad höllinni í Grindavík fara fram körfuboltaleikir þar en þar mætast einnig lið frá öllum Suðurnesjunum. Júdódeildir Grindavíkur og Þróttar Voga taka líka þátt og verða með sameiginlega æfingu í Gjánni Grindavík, ungir og efnilegir skákleikmenn á öllum aldri  munu etja kappi í Gjánni og á sama tíma ætlar sundfólk frá UMFG og Þrótti frá Vogum reyna með sér í sundlauginni í Grindavík​.

Guðmundur er lífsglaður og hjartahlýr drengur með mörg áhugamál. Hann hefur áhuga á fótbolta, sundi, hjólreiðum, skák og Lego. Hann hefur verið í Myllubakkaskóla með einstökum bekkjarfélögum sem hafa stutt hann á ólýsanlegan hátt á samt því að  stunda nám hjá grunnskóla Barnaspítalans í öðrum og nú fjórða bekk. Stefnan í hans meðferð núna er að vera á sjúkrahúsi í Huddinge í Svíþjóð þessi jólin.

Styrktarreikningur: Guðmundur Atli Helgason, Kt: 190808-4080, Reikn: 0542-14-40497I.