Íþróttaárið 2014: Njarðvíkingar upp um deild
Elvar Már Friðriksson fer yfir árið í íþróttum á Suðurnesjum. Að hans mati bar það helst til tíðinda að Grindvíkingar urðu bikarmeistarar í körfubolta karla, auk þess sem þeir léku til úrslita í Íslandsmótinu. Eins rifjar Elvar upp bikarævintýri Keflvíkinga í fótboltanum, sem endaði því miður í tapi í úrslitaleik. Hann er bjartsýnn þegar kemur að árinu 2015 og telur að Suðurnesjaliðin eigi öll eftir að gera betur í körfunni.
Hvað stóð upp úr á íþróttaárinu 2013 á Suðurnesjum?
Það sem stóð upp úr að mínu mati var þegar Keflavík í fótboltanum komust í bikarúrslit og Grindavík í körfuboltanum urðu bikarmeistarar og komust einnig í úrslit í íslandsmótinu.
Hver voru vonbrigði ársins að þínu mati?
Vonbrigðin voru þau að Njarðvík í fótboltanum skyldu ekki komast upp úr 2. Deild, kvennakarfan í Njarðvík féll niður um deild, og einungis eitt félag vann til titils þetta árið í boltagreinum.
Hvaða íþróttamaður/kona skaraði framúr á árinu?
Elías Már í fótboltanum hjá Keflavík átti gott ár, Sara Rún í körfuboltanum í Keflavík átti einnig flott ár svo er ekki hægt að líta framhjá Njarðvíkingnum Ingvari Jónssyni sem spilaði með Stjörnunni var besti maður Íslandsmótsins í fótbolta.
Einhverjar íþróttagreinar sem komu sterkar inn á þessu ári?
Ég hef aðallega fylgst með boltagreinunum, en júdódeildin í Njarðvík er alltaf að verða stærri svo hún kom sterk inn á þessu ári.
Hvernig sérðu íþróttafólk af Suðurnesjum standa sig á næsta ári?
Á Suðurnesjum eru margir góðir íþróttarmenn svo ég sé fram á skemmtilegt ár og held að öll lið í boltaíþróttunum muni gera betri hluti en árið 2014. Njarðvík í kvennakörfunni mun komast upp um deild og fótboltinn í Njarðvík mun gera það sama. Ég held að Keflvíkingar muni eiga betra ár í fótboltanum og öll þrjú liðin í körfunni munu eiga betri seinni umferð.