Íþróttaárið 2011: Minnir á Mark Hughes
Sigursveinn Bjarni Jónsson, formaður bæjarráðs í Sandgerði og fyrrverandi formaður knattspyrnudeildar Reynis og knattspyrnuáhugamaður með meiru spáir því að íþróttaárið 2012 verði blómlegt á Suðurnesjunum. Hann telur að titlarnir muni hrannast upp en Víkurfréttir fengu Sigursvein til að fara yfir árið 2011 í íþróttum á Suðurnesjum.
Hvað finnst þér standa upp úr í íþróttalífinu á Suðurnesjunum árið 2011?
„Sem gallharður stuðningsmaður fótboltans í Sandgerði þá horfir maður mest til afreka þar á bæ. Helst vakti athygli mína sú staðreynd að Meistaraflokkur Reynis í knattspyrnu sá áhorfendum fyrir gríðarlegri skemmtun á vellinum í sumar því að í leikjum liðsins í Íslandsmótinu voru skoruð alls 118 mörk! Það gera 5,36 mörk að meðaltali í leik og það hlýtur að vera einhvers konar met. Þá má alls ekki gleyma því að 6. Flokkur karla hjá Reyni kom heim með Eldfellsbikarinn af Shellmótinu í Eyjum eftir glæstan sigur í úrslitaleik.“
Hver voru vonbrigði ársins að þínu mati?
„Að mínir menn í Reyni skyldu enda í 8. sætinu eftir að hafa ennþá átt möguleika á því að komast upp þegar aðeins örfáar umferðir voru eftir af mótinu. Á persónulegu nótunum var það hinsvegar tap 4. Flokks karla hjá Keflavík gegn Breiðabliki, 1-3, í úrslitaleik Íslandsmótsins í knattspyrnu á Keflavíkurvellinum í haust. Átti einn gutta þar sem þurfti að sætta sig við silfrið að þessu sinni.“
Hvaða íþróttamaður/kona skaraði framúr á árinu?
„Jóhann Magni Jóhannsson markakóngur 2. Deildar, 17 mörk í 19 leikjum. Topp framherji þar á ferð, hefur alltaf minnt mig á Mark Hughes á velli og kæmi mér ekki á óvart ef að Hughes gamli væri helsta fyrirmynd Magna enda er hann mikill laumuaðdáandi Man.Utd.“
Einhverjar íþróttagreinar sem komu sterkar inn á þessu ári?
„Norðurbær – Suðurbær mótið sem haldið er í Sandgerði á Sandgerðisdögum kemur fyrst upp í hugann. Þá er leikið ákveðið afbrigði af knattspyrnu þar sem geta og líkamlegt ástand skipta ekki höfuðmáli. Þar skiptir viljinn til að vera með einfaldlega höfuðmáli.“
Hvernig sérðu íþróttafólk af Suðurnesjum standa sig á næsta ári?
„Ég held að þetta verði ár Suðurnesja í íþróttum sama hvaða íþróttagrein á í hlut, titlarnir munu hrannast upp á suðurnesjum árið 2012.“