Íþróttaárið 2010 - Erfitt ár hjá hnefaleikamönnum
Daði Ástþórsson er yfirþjálfari Hnefaleikafélags Reykjaness. Hann er sigursælasti boxþjálfari landsins en hann hefur skilað 16 Íslandsmeistaratitlum í hús. Daði býr yfir 14 ára reynslu í þjáfun en hann er aðeins þrítugur að aldri. Við fengum Daða til að segja okkur frá starfi Hnefaleikafélagssins og hvernig árið 2010 var að hans mati.
Hvað finnst þér standa upp úr í íþróttalifinu á Suðurnesjunum árið 2010?
Ég held ég verði að benda á frábæran árangur Kraftlyftingafélagsins Massa og Taekwondodeildar Keflavíkur.
Hvernig var árið 2010 hjá hnefaleikamönnum á Suðurnesjum?
Þetta hefur verið mikið umbrotsár hjá hnefaleikafélaginu. Við náðum ákveðnum hápunkti í starfinu árið 2009 og það er ágætt sem viðmið, en svo hófst leit að nýjum hæðum með tilheyrandi skipulagsbreytingum. Í heildina verð ég að segja að þetta hefur verið erfitt ár, en það er strax farið að skila sér til baka og ég get ekki sagt annað en að ég fari bjartsýnn inn í nýtt ár.
Hvernig telurðu að árið 2011 verði hjá hnefaleikamönnum?
Hnefaleikatímabilið á Íslandi hefst hér í Reykjanesbæ á Ljósanótt og lýkur yfirleitt með Íslandsmótinu í apríl. Stefnan er fyrst og fremst að nýjir liðsmenn haldi áfram að safna reynslu og verði fullbúnir næsta haust en þá býst ég við að félagið fái næstu uppskeru. Annað er að byggja Hafsteini Smára Óskarssyni og Birni Snævari Björnssyni umhverfi til að æfa eins og afreksmennirnir sem þeir eru. Eitt skref í þessa átt eru tilraunir með reglubundnar, sameiginlegar æfingar hnefaleikafélaganna á höfuðborgarsvæðinu.