Íþróttaannáll 2017
Íþróttalífið á Suðurnesjum hefur svo sannarlega blómstrað í ár og hafa fjölmargir Íslands- og bikarmeistaratitlar unnist, bæði hjá einstaklingum og liðum. Norðurlanda- og heimsmeistaratitlar hafa einnig litið dagsins ljós og það sem stendur upp úr þegar farið er yfir íþróttaárið er hversu margt ungt fólk er áberandi í íþróttalífinu á Suðurnesjum.
Hér fyrir neðan er stiklað á stóru í íþróttalífinu á árinu sem leið.
Boxari ársins
Margrét Guðrún Svavarsdóttir var valin hnefaleikakona ársins hjá Hnefaleikasambandi Íslands. Margrét er aðeins 19 ára gömul og hefur unnið allar innlendar viðureignir sínar og er núverandi Íslandsmeistari í -75 kg flokki kvenna.
Áfall ársins
Emelía Ósk Gunnarsdóttir, leikmaður Keflavíkur og íslenska landsliðsins í körfubolta, sleit krossbönd og leikur ekki meira með liðinu á tímabilinu. Emelía var einn besti leikmaður Keflavíkur og er ein af bestu leikmönnum landsins.
Leikmaður ársins
Andri Rúnar Bjarnason, leikmaður Grindavíkur í knattspyrnu, fór á kostum í Pepsi-deildinni í knattspyrnu í sumar og jafnaði meðal annars markametið í efstu deild en hann skoraði 19 mörk. Andri var einnig valinn besti leikmaður deildarinnar og Grindavíkur að tímabili loknu.
Vonbrigði ársins
Kvennalið Njarðvíkur í körfubolta hefur ekki enn sigrað leik í deildinni en er þó komið í undanúrslit í Laugardalshöllinni í Maltbikarnum. Liðið hefur ekki náð að stíga upp í deildinni í vetur.
Draumahögg ársins
Logi Sigurðsson, 15 ára kylfingur í Golfklúbbi Suðurnesja, fór holu í höggi á Hólmsvelli í Leiru í sumar. Draumahöggið kom á 16. brautinni sem er 126 metrar á lengd.
Óvissa ársins
Kvennalið Grindavíkur í körfu skipti ört um þjálfara á árinu og mikil óvissa ríkti vegna þess nánast allt árið. Spilandi þjálfari liðsins, Angela Rodriguez, kom seint inn í deildina í haust og hætti Embla Kristínardóttir í Grindavík vegna ósættis við hana.
Einvígi ársins
Grindavík og KR kepptust sín á milli um það hvort liðið myndi hampa Íslandsmeistaratitlinum í körfubolta. KR fór með sigur af hólmi í fimmta leik liðanna en lið Grindavíkur var ólíkt sjálfu sér í úrslitaleik liðanna sem fram fór í Vesturbænum.
Ungstyrni ársins
Þrettán stelpur af Suðurnesjum léku með U15 ára landsliðinu í körfu í sumar en í átján manna liði kvennaliðsins voru þrettán stelpur af Suðurnesjum. Fimm þeirra koma úr Grindavík, sjö úr Keflavík og ein úr Njarðvík.
Uppfærsla ársins
Karlalið Njarðvíkur og Keflavíkur komust upp um deild í knattspyrnunni. Keflavík hafnaði í öðru sæti í Inkasso-deildinni og leikur í efstu deild (Pepsi-deildinni) í sumar og Njarðvíkingar urðu efstir í 2. deildinni og leika því í Inkasso-deildinni. Þróttur Vogum tryggðu sér einnig sæti í 2. deildinni í fyrsta sinn. Glæsilegur árangur hjá liðunum.
Höfuðhögg ársins
Sara Hrund Helgadóttir, leikmaður Grindavíkur í knattspyrnu, lagði fótboltaskóna á hilluna síðastliðið sumar vegna endurtekinna höfuðhögga og heilahristinga. Mikil vitundarvakning hefur orðið á höfuðhöggum íþróttamanna undanfarin misseri og eru leikmenn, þjálfarar og íþróttafélögin sjálf farin að gera sér betur grein fyrir alvarleika höfuðhögga.
Kraftlyftingakona ársins
Katla Björk Ketilsdóttir tvíbætti Norðurlandametið í snörun í -58 kg flokki á jólamóti Lyftingasambands Íslands. Katla, sem er aðeins sextán ára gömul, hefur verið að gera það gott i lyftingum á árinu og hefur meðal annars sett Íslandsmet og Norðurlandamet.
Bardagamaður ársins
Björn Lúkas Haraldsson keppti í MMA í fyrsta sinn á árinu og tók meðal annars silfrið á áhugamannamóti MMA í Barein í haust. Björn Lúkas keppir sem áhugamaður í MMA og má gera ráð fyrir því að atvinnumennskan sé handan við hornið hjá honum.
Taekwondo-maður ársins
Kristmundur Gíslason er með sterkari keppendum landsins í taekwondo og hefur mikla reynslu af erlendum mótum, en hann sigraði alla bardaga sína innanlands. Hann skrifaði meðal annars undir afrekssamning við taekwondo-deild Keflavíkur á árinu.
Erlendi leikmaður ársins á Suðurnesjum
Hin sextán ára gamla Martyna Kryszewska var kjörin blakkona ársins, en hún hefur góðan grunn frá Póllandi og þykir skara fram úr í blakinu. Blakið hefur verið í miklum uppgangi í Reykjanesbæ undanfarið og er framtíðin björt.
Sundgarpur ársins
Már Gunnarsson stórbætti Íslandsmet í flokki S12 í báðum baksundsgreinum og vann til silfurverðlauna í 50 metra baksundi á Norðurlandameistaramóti fatlaðra í ár. Már stefnir á Ólympíuleika fatlaðra, eða Paralympics, sem fram fara í Tókýó árið 2020.
Crossfit-ari ársins
Jóhanna Júlía Júlíusdóttir varð Íslandsmeistari í Crossfit á árinu, Jóhanna hefur staðið sig vel í Crossfit undanfarin misseri og munum við væntanlega sjá hana
á meðal þeirra bestu í framtíðinni.
Júdómaður ársins
Jóhannes Pálsson átti gott ár í júdóíþróttinni, hann varð til að mynda í fyrsta sæti á opnu móti í Svíðþjóð á árinu ásamt því að hann sigaði unglingaflokkinn á Sleipnismótinu.