Íþróttaannáll 2013
Íþróttaárið 2013 á Suðurnesjum gert upp
Árið var að vanda blómlegt á Suðurnesjum þegar kom að íþróttum. Fjölmargir einstaklingar og lið unnu til afreka á árinu og er nánast ógerningur að telja öll frækin afrek Suðurnesjamanna á árinu upp hér. Hér verður því farið yfir afrek nokkurra aðila og atburði sem þóttu hvað mest áberandi í íþróttalífinu á Suðurnesjum árið 2013.
Ár Ástrósar
Það væri ekki orðum aukið ef kalla mætti árið 2013 ár taekwondo á Suðurnesjum. Keflvíkingar unnu nánast allt sem í boði var í þeirri grein hérlendis, og náðu auk þess frábærum árangri erlendis. Teakwondofólk ársins á Íslandi kom frá félaginu annað árið í röð. Þar var á meðal hin 14 ára Ástrós Brynjarsdóttir sem einnig hlaut nafnbótina Íþróttamaður Reykjanesbæjar. Ástrós vann til 19 gullverðlauna á árinu, flest þeirra í fullorðinsflokki þrátt fyrir að vera ung að árum. Ástrós varð m.a. Norðurlandameistari á árinu. Það liggur ljóst fyrir að hér er á ferðinni ein efnilegasta íþróttakona landsins.
Stóru titlarnir á sínum stað
Körfuboltinn á sérstakan stað í hjörtum Suðurnesjamanna, því verður ekki neitað. Stærstu titlar ársins féllu Suðurnesjaliðum í skaut, en Grindvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla á meðan Keflvíkingar hömpuðu Íslands- og bikarmeistaratitlum í kvennaflokki. Yngri flokkar sópa líka að sér verðlaunum í körfunni og má segja að ennþá séu yfirburðir Suðurnesjanna augljósir þegar kemur að körfubolta.
Kristján aftur í Bítlabæinn - ótrúlegur endasprettur
Það vakti mikla athygli þegar Zoran Ljubicic var látinn taka poka sinn og Kristján Guðmundsson tók við stjórnartaumum hjá Keflvíkingum í fótboltanum. Undir stjórn Kristjáns náði liðið að bjarga sér eftirminnilega frá falli. Kristján tók við liðinu þann 24. júní, en fyrst um sinn gekk brösuglega. Eftir sigur í fyrsta leik komu fjórir tapleikir í röð hjá Keflvíkingum. Það var svo undir lokin sem stigin söfnuðust upp á töflunni. Frá 7. ágúst náðu Keflvíkingar að vinna sér inn 17 af þeim 20 stigum sem liðið nældi í undir stjórn Kristjáns.
Fyrsti Íslandsmeistarinn í áhaldafimleikum
Fimleikadeild Keflavíkur eignaðist sinn fyrsta Íslandsmeistara í áhaldafimleikum á árinu en Lilja Björk Ólafsdóttir varð Íslandsmeistari í 2. þrepi, 14 ára og eldri. Hún var með hæstu einkunn á tvíslá og í gólfæfingum.
Hörður hrökk í gang
Framherjinn Hörður Sveinsson gekk aftur til liðs við Keflvíkinga eftir veru hjá Valsmönnum. Hann fann markaskóna sína á haustmánuðum og átti stóran þátt í því að tryggja veru Keflvíkinga í efstu deild.
Körfuboltaparið í Grindavík
Árið var gott fyrir skötuhjúin Jóhann Árna Ólafsson og Petrúnellu Skúladóttur í Grindavík. Jóhann varð Íslandsmeistari í körfubolta með Grindvíkingum annað árið í röð og Petrúnella stóð sig frábærlega með A-landsliði Íslands á árinu og Grindavíkurliðinu. Þau Jóhann og Petrúnella voru svo kjörin íþróttafólk Grindavíkur með töluverðum yfirburðum.
Sigrar í sundinu
Sunddeild ÍRB sýndi mátt sinn og megin á árinu en þetta unga og efnilega lið er smátt og smátt að verða að stórveldi í sundíþróttinni. Íris Ósk Hilmarsdóttir vann gull á Norðurlandamótinu annað árið í röð en nánast ómögulegt er að telja upp einstaka sundmenn sem skara fram úr í Reykjanesbæ, svo miklir hæfileikar eru innan raða ÍRB liðsins. Titlar ÍRB á árinu: Íslandsmeistarar á Aldursflokkameistaramóti, flest verðlaun á Unglingameistarmóti Íslands, flest verðlaun á Íslandsmeistarmót í 25m laug. Bikarmeistarar kvenna í 1. og 2. deild og annað sæti í bikarkeppni karla.Flestir sundmenn í öllum unglingalandsliðum.
Ásmundur tvöfaldur Íslandsmeistari
Knapinn Ásmundur Ernir Snorrason var valinn íþróttamaður Mána 2013. Ásmundur náði mjög góðum árangri á árinu og þar má helst telja að hann varð tvöfaldur Íslandsmeistari á Íslandsmótinu sem haldið var á Akureyri í sumar.
Pálína til Grindavíkur
Besta körfuknattleikskona landsins undanfarin ár, Pálína Gunnlaugsdóttir, ákvað að yfirgefa Keflvíkinga á árinu. Hún gekk til liðs við nágrannana í Grindavík þar sem hún sóttist eftir nýrri áskorun eftir að hafa unnið fjölda titla með Keflvíkingum á undanförnum árum.
Heimkoma Loga
Logi Gunnarsson ákvað að leika með Njarðvíkingum að nýju eftir áralanga dvöl í atvinnumennsku í körfuboltanum. Logi var eftirsóttur af liðum Domino’s deildarinnar en að lokum var það hjartað sem réði för, en Logi er borinn og barnfæddur Njarðvíkingur. Hann hefur ásamt Elvari Má Friðrikssyni myndað eitrað tvíeiki í Ljónagryfjunni.
Holtaskóli vann Skólahreysti þriðja árið í röð - magnað met Elvu
Holtaskóli sigraði þriðja árið í röð í Skólahreysti. Holtaskóli hlaut 53 stig og verður að segjast að um magnaðan árangur er að ræða hjá skólanum. Myllubakkaskóli keppti einnig í úrslitum og stóð sig vel, en skólinn endaði í 5. sæti.
Elva Lísa Sveinsdóttir úr Njarðvíkurskóla vakti landsathygli þegar hún bætti Íslandsmetið í hreystigreip í riðlakeppni Skólahreysti á árinu. Fyrrum Íslandsmet var 6:28 mínútur en Elva gerði sér lítið fyrir og náði tímanum 11:08 mínútur og bætti því fyrra met verulega.
Baráttan um Brooklyn
Þær fregnir bárust með skömmu millibili að tveir efnilegir piltar úr Reykjanesbæ væru á leið í bandaríska háskólakörfuboltann. Elvar Már Friðriksson leikstjórnandi Njarðvíkinga samdi við Long Island University (LIU) skólann í Brooklyn hverfi New York borgar. Gunnar Ólafsson vakti athygli á sér þegar hann tryggði Keflvíkingum sigur á Njarðvík í Ljónagryfjunni í einni af eftirminnilegri grannarimmum síðari ára. Gunnar mun í haust leika með St. Francis skólanum sem einnig er í Brooklyn í New York. Gaman verður að fylgjast með baráttu þeirra félaga á næsta ári í mekka körfuboltans.
Keflvíkingar í atvinnumennsku
Keflvíkingar sendu tvo unga og efnilega stráka í atvinnumennsku á árinu. Arnór Ingvi Traustason var kjörinn efnilegasti leikmaður Pepsi deildarinnar og var hann fastamaður í undir 21 árs landsliði Íslands. Hann samdi við sænska liðið Norrköping og verður spennandi að fylgjast með miðjumanninum hæfileikaríka reyna fyrir sér utan landsteinanna. Hinn kornungi og efnilegi Samúel Kári Friðjónsson hefur heldur betur byrjað vel hjá unglingaliði Reading í Englandi og spurning hreinlega hvort kappinn fái tækifæri með aðalliðinu á nýja árinu.
Goðsögn óð yfir lækinn
Það er óhætt að segja að Guðmundur Steinarsson sé fyrir allnokkru orðinn goðsögn í lifanda lífi hjá Keflvíkingum enda marka- og leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi. Það þóttu því óvænt tíðindi þegar markahrókurinn ákvað að söðla um og ganga til liðs við Njarðvíkinga í 2. deildinni í knattspyrnunni í byrjun árs. Guðmundur lék með liðinu í sumar og var auk þess aðstoðarþjálfari. Nú er Guðmundur orðinn aðalþjálfari Njarðvíkinga og líklegt að knattspyrnuferli hans sem leikmanns sé lokið.
Karen kylfingur á uppleið
Það voru engin stórafrek hjá kylfingum á Suðurnesjum en þó má ekki gleyma góðri frammistöðu Karenar Guðnadóttur, golfkonu úr Golfklúbbi Suðurnesja. Hún var nálægt því að sigra á Nettó-mótinu á Hólmsvelli í Leiru en mótið var hluti af Eimskipsmótaröðinni í golfi, en þar keppa allir bestu kylfingar landsins. Karen sem lék lokahringinn á höggi undir pari tapaði fyrir Valdísi Þóru Jónsdóttur í bráðbana um sigurinn en Valdís hefur verið ein af þremur bestu golfkonum landsins undanfarin ár. Karen er mjög vaxandi kylfingur og er komin niður í 1,6 í forgjöf. Hún komst í fyrsta sinn í verðlaunasæti á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar.