HSS
HSS

Íþróttir

Issa og Branco áfram hjá Keflavík í bili
Föstudagur 24. mars 2006 kl. 14:26

Issa og Branco áfram hjá Keflavík í bili

Knattspyrnumennirnir Issa Abdulkadir og Branislav Milisevic verða áfram hjá Keflavík næstu misseri en nýverið var þeim sagt upp störfum hjá félaginu. Fotbolti.net greinir frá.

Issa og Branco vilja vera áfram hjá Keflavík og sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflvíkinga, að allt eins gott væri að hafa þá hjá félaginu eins og að borga þeim fyrir að fara.

„Þeir báðu um það að fá smá meiri séns til að sýna sig og sanna og við ætlum að leyfa þeim það. Við erum ekki með það stóran leikmannahóp,“ sagði Kristján í samtali við fotbolti.net.

Kristján sagði ennfremur í spjalli sínu við fotbolti.net að vottur af metnaðarleysi hefði verið í Issa og Branco en að uppsögnin hafi kannski verið sú viðvörun sem þeir hefðu þurft á að halda.

www.fotbolti.net


 

Bílakjarninn
Bílakjarninn