Bygg
Bygg

Íþróttir

Íslenskur sigur og áfram í A-deild
Laugardagur 6. ágúst 2005 kl. 15:33

Íslenskur sigur og áfram í A-deild

Íslenska U 16 ára drengjaliðið í körfuknattleik vann í dag nauman sigur á Belgum í jöfnum og spennandi leik. Lokatölur leiksins voru 64-56 og íslenska liðið því búið að tryggja sér þátttökurétt í A-deild Evrópumótsins. Hefði liðið tapað leiknum gegn Belgum í dag þá hefði Ísland fallið á ný í B-deild Evrópumótsins.

Þeir Þröstur Jóhannsson og Hjörtur Hrafn Einarsson fóru hamförum í leiknum en þeir voru báðir með tvöfalda tvennu, 21 stig og 12 fráköst.


Bílakjarninn
Bílakjarninn