Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Íslenska landsliðið æfir í Serbíu - þrír frá Keflavík
Fimmtudagur 11. apríl 2013 kl. 09:18

Íslenska landsliðið æfir í Serbíu - þrír frá Keflavík

Sex íslenskir taekwondo kappar eru nú staddir á æfingabúðum í Vrsac í Serbíu. Þrír af þeim koma frá Keflavík. Þar eru samankomnir um 500 keppendur frá Króatíu, Svíþjóð, Svartfjallalandi, Búlgaríu, Swiss, Íslandi og fleiri þjóðum til að taka þátt í Millennium Open mótinu.

Serbnesku landsliðsþjálfararnir sjá um æfingabúðir í vikunni fyrir mótið. Serbía er í dag ein sterksta taekwondo þjóð í Evrópu og eiga meðal annars gullverðlaunahafa frá síðustu Ólympíuleikum. Landsliðsþjálfari Serbíu kom til Íslands fyrr á árinu með tvo af sínum bestu keppendum til að halda æfingabúðir og keppa á Reykjavíkurleikunum.

Íslenska liðið kom til Serbíu á mánudag og hefur síðan verið við æfingar með hópnum. Æft er tvisvar á dag en einnig geta keppendur farið í baðhús til slökunar og sótt fyrirlestur um andlega þjálfun íþróttamanna. Á föstudag verður svo vigtun og svo keppa fjórir Íslendingar á laugardag.

Íslenski hópurinn
Meisam Rafiei landsliðsþjálfari, Afturelding
Ingibjörg Erla Grétarsdóttir landsliðskona, Selfosss
Kristmundur Gíslason landsliðsmaður, Keflavík
Karel Bergmann Gunnarsson landsliðsmaður, Keflavík
Haukur Skúlason taekwondosamband Íslands, Afturelding
Helgi Rafn Guðmundsson, Keflavík


Strax á mánudag halda þau Kristmundur og Ingibjörg ásamt Meisam landsliðsþjálfara til Moldavíu að keppa á Evrópumeistaramóti undir 21 árs aldri.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024