Íslandsmet hjá Ólöfu Eddu í síðasta sundi
Ólöf Edda Eðvarðsdóttir lauk þátttöku á Olympíudögum æskunnar með glæsilegu íslensku telpnameti í 200 metra flugsundi.
Ólöf Edda bætti fyrra met sem hún átti sjálf um tæpar tvær sekúndur og synti á tímanum 2:24,80. Þessi tími nægði Ólöfu til sigurs í B-úrslitum sundsins og náði hún því 9. besta tíma keppenda í 200 metra flugsundi.