Íslandsmeistaratitill til Keflavíkur
Keflavík er Íslandsmeistari í Futsal - innanhúss knattspyrnu eftir æsispennandi úrslitaviðureign gegn Víði í Garði í gær. Keflavík sigraði 6-5 en sigurmarkið kom þegar innan við mínúta var eftir. Markið mikilvæga skoraði Zoran Daníel Ljubicic.
Staðan í hálfleik var 3-2 Keflavík í vil. Þegar sex mínútur voru eftir af leiknum leiddi Keflavík 5-3 en Víðismenn jöfnuðu leikinn með mikilli baráttu undir lok leiksins En það var svo Zoran Daníel sem skoraði sigurmarkið eins og áður sagði. Sigurður Sævarsson gerði tvö af mörkum Keflavíkur og þeir Bojan Stefán Ljubicic, Magnús Þórir Matthíasson, Guðmundur Steinarsson og Zoran Daníel skoruðu eitt hver.
Keflavík vann Hvöt í 8 liða úrslitum 7-4 og Víking Ólafsvík 6-3 í undanúrslitum. Þess má geta að feðgarnir Zoran Daníel og Bojan Stefán spiluðu báðir en það gerist ekki oft að feðgar vinni saman Íslandsmeistaratiltil í knattspyrnu.