Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Íþróttir

Íslandsmeistarar í kjúklingatínslu
Fimmtudagur 20. september 2012 kl. 13:04

Íslandsmeistarar í kjúklingatínslu

Ríkjandi Íslandsmeistarar í körfuknattleik undirbúa sig þessa dagana fyrir komandi tímabil. Liður í undirbúningnum er æfingarferð til Spánar á næstu dögum. Til að fjármagna ferðina hafa leikmenn m.a. staðið fyrir körfuboltaskóla fyrir yngri iðkendur í Grindavík. Einnig mættu þeir í kjúklingatínslu í kjúklingabúið hjá Svani og Matthildi þar sem þessar myndir voru teknar.

Leikmennirnir settu kjúklinga í kassa sem voru svo sendir í sláturhús.

Ekki var hlaupið að því að finna galla á alla leikmennina því margir þeirra eru í yfirstærð!

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25