Íslandsbanki styrkir Knattspyrnudeild Keflavíkur
Íslandsbanki og knattspyrnudeild Keflavíkur undirrituðu tveggja ára samning nýlega sem kveður á um að Íslandsbanki styrki knattspyrnuna. Samningurinn er liður í stefnu bankans að styðja við íþróttir og menningarlíf á svæðinu.
Á myndinni má sjá Sighvat Inga Gunnarsson útibússtjóra og Þorstein Magnússon formann knattspyrnudeildar Keflavíkur handsala samninginn.