Bygg
Bygg

Íþróttir

Ísland tapaði stórt gegn Þjóðverjum og hafnaði í fjórða sæti
Mánudagur 1. ágúst 2011 kl. 21:48

Ísland tapaði stórt gegn Þjóðverjum og hafnaði í fjórða sæti

U17 ára landslið Íslands tapaði stórt fyrir Þjóðverjum í leiknum um þriðja sætið í úrslitakeppni Evrópumótsins í Sviss í gær.

Lokatölur urðu 2-8 fyrir þýska liðið sem hafði verið 0-5 yfir í hálfleik. Arna Lind Kristinsdóttir úr Keflavík sem lék í markinu framan af móti missti sæti sitt fyrir leikinn gegn þýsku stelpunum og sömuleiðis fékk Grindvíkingurinn Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir ekki að leika í þessum leik sem endaði með stóru tapi eins og áður sagði.

Íslenska liðið má þó vera stolt af því að ná fjórða sætinum á móti sem þessu gegn sterkustu knattspyrnuþjóðum Evrópu.

Mynd af liðinu: Ingibjörg Yrsa er fjórða frá vinstri í efri röð og Arna Lind er fjórða frá vinstri í neðri röð.

Bílakjarninn
Bílakjarninn