Ísland og Rúmenía mætast í Keflavík
Ísland og Rúmenía mætast í undankeppni Evrópumótsins í körfuknattleik í Keflavík á sunnudag.
Forsala á leikinn hefst fimmtudaginn 16. september 2004. Forsalan fer fram á tveimur Skeljungsstöðvum; við Vesturlandsveg og Birkimel og í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Keflavík.
Miðar verða seldir í forsölu fimmtudag, föstudag og laugardag, eða á meðan enn verða til miðar.
Verð í forsölu er: 1.000,- fyrir fullorðna og 500,- fyrir börn.
Verð á leikdegi er 1.500,- fyrir fullorðna og 700,- fyrir börn.
Hljómsveitin Á móti sól mun hita upp fyrir leikinn með stemningstónlist frá kl. 15:00, en leikurinn sjálfur hefst kl. 16.00.
Allir körfuknattleiksunnendur eru hvattir til að ná sér í miða á leikinn hið allra fyrst og fjölmenna síðan á leikinn og hvetja strákana til dáða gegn Rúmenum.