Ísfirðingar heimsækja Reyni í kvöld
Reynir tekur á móti liði BÍ frá Ísafirði á Sandgerðisvelli í kvöld, mánudaginn 5. júlí. Leikurinn hefst kl. 20:30 og er frítt á völlinn í boði Ný-fisks. Leikurinn er mjög mikilvægur fyrir Reynismenn í baráttunni um sæti í úrslitum 3. deildar og er sigur nauðsynlegur. Sandgerðingar ættu því að nýta sér kostaboð Ný-fisks og mæta frítt á völlinn í kvöld.