Íþróttir

Isavia styður við barna- og unglingastarf í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 14. mars 2018 kl. 10:20

Isavia styður við barna- og unglingastarf í Reykjanesbæ

Styrktarsjóður Isavia veitti í gær styrki til barna- og unglingastarfs aðildarfélaga Íþróttabandalags Reykjanesbæjar (ÍRB). Styrkjunum er ætlað að styðja við allar greinar íþrótta og stuðla að auknum möguleikum barna og unglinga til að stunda sínar íþróttir og fara í nauðsynlegar æfinga og keppnisferðir. Er styrkveitingin tengd við iðkendafjölda allra félaga og deilda innan ÍRB en þó er tryggð ákveðin lágmarksupphæð til þeirra sem eru með fáa iðkendur og standa í uppbyggingarstarfi í sinni grein.

Styrkirnir voru afhentir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og voru það þeir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar, og Þröstur Söring, framkvæmdastjóri rekstarsviðs Keflavíkurflugvallar, sem afhentu styrkina. Iðkendur frá þeim félögum sem fengu styrki við úthlutunina tóku við þeim og mættu margir þeirra í keppnisbúningum síns félags og skapaði það skemmtilega umgjörð.

Public deli
Public deli

„Það er okkur hjá Isavia mjög mikilvægt að blómlegt íþrótta- og tómstundastarf þrífist í Reykjanesbæ enda er Keflavíkurflugvöllur stærsti vinnuveitandinn hér á Suðurnesjum,“ segir Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia. „Mjög stór hópur íbúa vinnur á flugvellinum og með öflugu og fjölbreyttu starfi íþróttafélaga er tryggt að íbúar hafa aðgang að þjónustu þeirra fyrir börn sín og unglinga. Við vitum að það er alltaf brýn þörf fyrir slíkan stuðning og við vonum að styrktarféð komi nærsamfélagi flugvallarins að góðum notum.“

„Við hjá ÍRB þökkum Isavia kærlega fyrir styrkinn sem að kemur sér vel fyrir barna- og unglingastarf íþróttahreyfingarinnar í Reykjanesbæ,“ segir Ingigerður Sæmundsdóttir formaður ÍRB. „Það er ánægjulegt að koma hingað í Flugstöð Leifs Eiríkssonar með fulltrúa úr flestum félögum og deildum og veita styrknum viðtöku.“