ÍRB vann til 18 verðlauna í Danmörku
Sundfólk úr ÍRB vann til átján verðlauna og var Þröstur Bjarnason sprettharðasti sundmaður mótsins á Lyngby Open sundmótinu í Danmörku um liðnahelgi. Þröstur sem er ríkjandi íþróttamaður Reykjanesbæjar bar sigur úr býtum í útsláttarkeppni í 50m skriðsundi og vann til sérstakra verðlauna.
Þeir sundmenn ÍRB sem unnu til verðlauna á mótinu voru:
Eydís Ósk Kolbeinsdóttir: Silfur í 400m skriðsundi, silfur í 400m fjórsundi, brons í 200m fjórsundi.
Sunneva Dögg Robertson: Silfur í 400m skriðsundi, silfur í 200m skriðsundi, brons í 100m flugsundi og gull í 200m flugsundi.
Þröstur Bjarnason: Silfur í 200m skriðsundi, gull í 100m skriðsundi og gull í 50m skriðsundi.
Björgvin Theódór Hilmarsson,: Brons í 100m baksundi og gull í 200m baksundi.
Gunnhildur Björg Baldursdóttir: Silfur í 200m flugsundi.
Sylwia Sienkiewicz: Silfur í 200m flugsundi.
Baldvin Sigmarsson: Silfur í 200m flugsundi og brons í 100m bringusundi.
Íris Ósk Hilmarsdóttir: Silfur í 200m baksundi.
Karen Mist Arngeirsdóttir: Brons í 50m bringusundi.