ÍRB sópaði að sér verðlaunum á Gullmóti
Það var aldeilis kraftur í sundmönnum ÍRB á Gullmóti KR um helgina þar sem félagið sópaði til sín verðlaunum, og sundfólkið félagsins var nánast á verðlaunapalli í öllum greinum í öllum flokkum. Miklar og góðar bætingar litu dagsins ljós og heilt yfir skartaði liðið góðri liðsheild og þéttleika. Í sumum greinum áttu keppendur ÍRB öll þrjú verðlaunasætin.
Helstu afrek ÍRB á mótinu voru eftirfarandi: Eydís Ósk Kolbeinsdóttir var í öðru sæti yfir stigahæsta sundfólk mótsins, ásamt því að fjögur mótsmet voru slegin af okkar fólki. Mótsmetin settu Þröstur Bjarnason í 400m skriðsundi í opnum flokki, Sunneva Dögg Friðriksdóttir í 200 flugsundi í flokki 15- 17 ára, Sólveig María Baldursdóttir í 100m flugsundi í flokki 12 ára og yngri, og Fannar Snævar Hauksson í 50m skriðsundi í flokki 12 ára og yngri.