ÍRB í öðru sæti á AMÍ 2010
Lið ÍRB hafnaði í öðru sæti á Aldursflokkameistarmóti Íslands, en mótið fór fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina. Alls vann liðið 17 einstaklingstitla og 6 titla í boðsundum. Í lok móts voru verðlaunaðir þeir sundmenn sem bestum árangri náðu í hverjum aldursflokki og þar bar Ólöf Edda Eðvarðsdóttir sigur úr býtum í flokki telpna 13 - 14 ára, en hún sigraði jafnframt í þremur greinum á mótinu.
Flesta Íslandsmeistaratitla einstaklinga hjá ÍRB vann Jóhanna Júlía Júlíusdóttir en hún vann alls fimm greinar. Lið ÍRB var jafnframt valið prúðasta liðið á mótinu og hlaut að launum stærðar nammiskál sem féll í góðan jarðveg hjá þreyttum sundmönnum.
Í heildina var mótið afar jákvætt fyrir ÍRB, nánast allir bættu sína bestu tíma verulega og stemmningin, metnaðurinn og gleðin til fyrirmyndar, að sögn forsvarsmanna hópsins.
Fimm innanfélagsmet féllu á mótinu, en þar voru að verki, Íris Dögg Ingvadóttir í 100m baksundi í telpnaflokki, Jóhanna Júlía Júlíusdóttir í 100m og 200m baksundi í telpnaflokki og Sveinn Ólafur Lúðvíksson í 100m og 400m skriðsundi í drengjaflokki.
Telpnasveit ÍRB setti nýtt íslandsmet telpna í 4 x 100m fjórsundi, en sveitina skipuðu þær: Íris Dögg Ingvadóttir, Ólöf Edda Eðvarðsdóttir, Jóhanna Júlía Júlíusdóttir og Hólmfríður Rún Guðmundsdóttir.
Þeir sem unnu til Íslandsmeistaratitla voru:
Jóhanna Júlía Júlíusdóttir: 100m flugsund, 200m flugsund, 100m baksund, 200m baksund og 200m fjórsund.
Ólöf Edda Eðvarðsdóttir: 100m bringusund, 200m bringusund og 400m fjórsund.
Birta María Falsdóttir: 100m flugsund, 200m flugsund og 400m fjórsund.
Lilja Ingimarsdóttir: 100m bringusund og 200m bringusund.
Soffía Klemenzdóttir: 200m baksund og 200m flugsund.
Einar Þór Ívarsson: 1500m skriðsund.
Íris Ósk Hilmarsdóttir: 100m baksund.
4 x 100 fjórsund telpna: Íris Dögg Ingvadóttir, Ólöf Edda Eðvarðsdóttir, Jóhanna Júlía Júlíusdóttir og Hólmfríður Rún Guðmundsdóttir.
4 x 100 mskriðsund telpna: Hólmfríður Rún Guðmundsdóttir, Íris Dögg Ingvadóttir, Ólöf Edda Eðvarðsdóttir og Jóhanna Júlía Júlíusdóttir.
4 x 50 mskriðsund telpna: Hólmfríður Rún Guðmundsdóttir, Íris Dögg Ingvadóttir, Ólöf Edda Eðvarðsdóttir og Jóhanna Júlía Júlíusdóttir.
4 x 100m skrið drengja: Sveinn Ólafur Lúðvíksson, Stefán,Örn Ólafsson, Þröstur Bjarnason og Einar Þór Ívarsson.
4 x 50m skrið drengja: Sveinn Ólafur Lúðvíksson, Stefán,Örn Ólafsson, Þröstur Bjarnason og Einar Þór Ívarsson.
4 x 100m fjórsund drengja: Einar Þór Ívarsson, Stefán Örn Ólafsson, Baldvin Sigmarsson og Sveinn Ólafur Lúðvíksson.
Efri mynd: Telpnasveit ÍRB á Lokahófi SSÍ, frá vinstri: Hólmfríður Rún, Jóhanna Júlía, Ólöf Edda og Íris Dögg.
Neðri mynd: Fyrirliðar ÍRB á AMÍ 2010 á Lokahófi SSÍ með silfurverðlaunin, frá vinstri: Diljá Heimisdóttir og Jóna Helena Bjarnadóttir.