Írar gera innrás í Reykjanesbæ
Reykjanesbær gegn Dublin
Hnefaleikafélag Reykjaness tekur á móti hnefaleikafélagi frá Dublin í Írlandi næstkomandi laugardag. Óhætt er að fullyrða að stemmningin verður mögnuð í nýju Boxhöllinni í Reykjanesbæ þar sem menn munu skiptast á höggum fram eftir kvöldi.
Fjöldi bardaga mun fara fram yfir daginn á unglingamótinu og byrjar fjörið kl.14.00. Frítt er inn yfir daginn og allir velkomnir. Kl.20.00 hefst svo hnefaleikakvöld þar sem kraftmiklir boxarar munu halda áhorfendum á nálum og mikið verður um dýrðir.
Aðgangseyrir er 1900 kr. en 1500 í forsölu. Það má ekki nokkur maður láta hnefaleikakvöldið fram hjá sér fara og einnig er fólk hvatt til þess að kynna sér starfsemi Hnefaleikafélag Reykjaness yfir daginn og skoða frábæra aðstöðu félagsins (áður Sundhöllin nú Boxhöllin í Reykjanesbæ).
Forsala á hnefaleikakvöldið er á Kaffi Duus Reykjanesbæ.
Mynd: Írski boxarinn Steve Collins þótti harður í horn að taka á sínum tíma. Hann sigraði Chris Eubank, frægan breskan boxara, í tvígang. Suðurnesjamenn munu þó ekki fá að berja hann augum á laugardag en Írarnir sem hingað koma munu einnig vera rammir viðureignar. Á myndinni sést hvar Collins sendir einn af andstæðingum sínum í gólfið. Þegar Collins lagði hanskana á hilluna var hann WBO millivigtarmeistari en aldrei varð af draumabardaganum hjá Collins gegn Roy Jones JR.