Ingvar Jónsson kallaður í landsliðið
Markvörðurinn Ingvar Jónsson úr Njarðvík er eini nýliðinn í landsliðshóp Lars Lagerback landsliðsþjálfara í fótbolta. Ingvar leikur með Stjörnunni í Pepsi-deildinni í dag en hann lék með Njarðvíkingum í 2. deild fyrir aðeins tveimur árum. „Þetta hefur verið jákvæð þróun fyrir mig en þetta er eitthvað sem ég hafði ekki mikið verið að pæla í,“ sagði Ingvar þegar Víkurfréttir náðu tali af honum.
Hann heyrði af valinu í gærkvöld þegar Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar tjáði honum fréttirnar á æfingu. „Þetta var ánægjulegt og mikill heiður. Maður hefur að sjálfsögðu ýmis markmið sem maður heldur fyrir sjálfan sig en það verður virkilega gamna að æfa með Gulla og Hannesi sem eru fremstu markmenn okkar um þessar mundir.“ Ingvar er aðeins 22 ára gamall og því ungur af markverði að vera. „Það er t.d. einn í ensku úrvalsdeildinni sem er 20 árum eldri en ég,“ sagði Ingvar léttur í bragði.