Ingibjörg líklega frá út tímabilið
Leikstjórnandi Keflvíkinga, Ingibjörg Jakobsdóttir, leikur líklega ekki meira með liðinu á þessari leiktíð þar sem hún er með slitið krossband í hné. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag. Ingibjörg meiddist í Lengjubikarnum áður en tímabilið hófst og hefur því ekkert spilað með liðinu í fyrstu umferðum Iceland Express-deildar kvenna.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ingibjörg lendir í álíka meiðslum því hún missti af tímabilinu 2008-9 vegna krossbandsslita í hné. Hún átti stóran þátt í velgengni Keflavíkur á síðustu leiktíð er liðið varð Íslands- og bikarmeistari. Nú hafa hins vegar ungir leikmenn verið að spila mikið og gengi liðsins hefur verið brokkgengt það sem af er tímabili.