INGIBER KEFLAVÍKUR MEISTARI
Keilarinn sterki, Ingiber Óskarsson, sigraði í Meistarakeppni Keflavíkur sem lauk í gærkvöldi en Meistarakeppnin er einstaklingskeppni. Leiknar voru tvær umferðir og að loknum fyrri keppnisdeginum voru þeir efstir og jafnir Ingiber, knattspyrnukappinn Kjartan Einarsson og Sigurvin Hreinsson. Reynslaog keppnisharka Ingibers vóg þungt á úrslitakvöldinu og sigraði hann örugglega í flokki án fjorgjafar. Kjartan Einarsson varð annað en Sigurvin Hreinsson varð að lúta í lægra haldi fyrir bróður sínum Jóhanni sem náði þriðja sætinu. Til úrslita í keppni með forgjöf léku Ómar Árnason, Sigurvin Hreinsson og Jóhann Ólafur Árnason og þar sigraði Sigurvin.Þann 1 des verður haldið opið keilumót með forgjöf styrkt af Samvinnuferðum Landsýn.