HSS
HSS

Íþróttir

Iceland Express deild karla hefst í kvöld
Fimmtudagur 19. október 2006 kl. 11:15

Iceland Express deild karla hefst í kvöld

Keppni í Icleand Express deild karla hefst í kvöld með fjórum leikjum sem allir hefjast kl. 19:15. Titilvörn Íslandsmeistara Njarðvíkur hefst í Seljaskóla þegar Njarðvík leikur gegn ÍR en ÍR-ingar eru ekki enn komnir með erlendan leikmann í sínar raðir eftir að hafa rekið Rodney Blackstock.

Leikur kvöldsins er án efa viðureign Keflavíkur og Skallagríms í Sláturhúsinu en dramatíkin var allsráðandi síðast þegar liðin áttust við í Keflavík. Þá slóu Borgnesingar Keflavík út í undanúrslitum Íslandsmótsins. Það má því gera ráð fyrir hörkuleik á Sunnubrautinni í kvöld.

Í Grafarvoginum mætast svo Fjölnir og Grindavík en Fjölnismönnum hefur ekki verið spáð góðu gengi í vetur og þá hafa Grindvíkingar einnig sést ofar í spánni en þetta árið var þeim spáð sjötta sætinu í deildinni.

Fjórði leikur kvöldsins er svo viðureign Hauka og Tindastóls.
Bílakjarninn
Bílakjarninn