ÍAV-mótið í knattspyrnu um helgina
Um helgina 18.- 19. janúar verður haldið knattspyrnumót í Reykjaneshöllinni styrkt af ÍAV. Fjögur lið munu spila í þessu móti en það eru Keflavík, FH, ÍBV og Þór.Mótið hefst á föstudeginum með leik FH og ÍBV kl. 18.00 og kl. 20.00 taka svo Keflvíkingar á móti Þór. Á laugardeginum verður leikið til úrslita þar sem tapliðin úr fyrri leikjunum mætast kl. 10.30. og sigurliðin kl. 12.30. Þetta mun koma til með að verða spennandi mót enda eru liðin sem taka þátt í því öll í úrvalsdeild og verður því gaman að sjá hvort ungu strákarnir í Keflavík haldi áfram að standa sig vel undir stjórn Kjartans Mássonar.