Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Hreystivöllur settur upp í Reykjanesbæ
Föstudagur 19. mars 2010 kl. 09:32

Hreystivöllur settur upp í Reykjanesbæ


Reykjanesbær hefur fest kaup á hreystivelli frá Icefitness sem settur verður upp á gamla malarvellinum við Vatnaveröld en þar er unnið að því að setja upp fjölbreyttan leikjagarð sem m.a. byggir á tillögum grunnskólabarna á íbúafundum með bæjarstjóra sl. haust.

Mikill áhugi er nú meðal grunnskólanemenda á hreystivöllum í kjölfar skólahreysti en í dag fer einmitt fram undankeppni þar sem nemendur úr grunnskólum Reykjanesbæjar taka þátt. Heiðarskóli bar sigur úr býtum í Skólahreysti á síðasta ári.

Hreystivöllurinn uppfyllir allar öryggiskröfur og er 30m langur og 12m breiður. Þar verður m.a. apastigi, upphýfingar, dýfur, rör og hreystigreip. Einnigmá nefna kaðalturn og armbeygjupall.

Stefnt er að því að völlurinn og leikjagarðurinn verði tilbúinn fyrir barnahátíð sem haldin verður í Reykjanesbæ dagana 21. - 25. apríl n.k. en þá mun fara þar fram hreystikeppni fyrir unga sem aldna, segir á heimasíðu Reykjanesbæjar.
---


Mynd: Sigurvegarar skólahreysti 2009. Nemendur í Heiðarskóla: Guðni Már Grétarsson, María Ása Ástþórsdóttir, Soffía Klemenzdóttir og Eyþór Ingi Einarsson.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024