Hrefna og Hafsteinn sigursæl að Mánagrund
Púttmót Framkvæmdasjóðs aldraðra fór fram að Mánagrund í Reykjanesbæ í dag á vegum Púttklúbbs Suðurnesja. Þau Hrefna M. Sigurðardóttir og Hafsteinn Guðmundsson fóru með sigur af hólmi í mótinu.
Úrslitin voru eftirfarandi:
Konur:
- Hrefna M. Sigurðardóttir, 67 högg
- María Einarsdóttir, 68 högg
- Gerða Halldórsdóttir, 69 högg
Bingóverðlaun: Sesselja Þórðardóttir 7 bingó
Karlar:
- Hafsteinn Guðmundsson, 68 högg
- Jóhann Alexsandersson, 68 högg
- Hákon Þorvaldsson, 69 högg
Bingóverðlaun: Hafsteinn Guðmundsson 8 bingó