Hrannar Hólm íþróttastjóri dönsku körfunnar
Keflvíkingurinn Hrannar Hólm hefur verið ráðinn íþróttastjóri hjá danska körfuboltasambandinu og með ráðningu Hrannars mun starfið breytast og stór hluti þess snúast um að finna og efla efnilegustu körfuboltamenn og konur Danmerkur. Þetta kemur fram á heimasíðu SISU.
Hrannar hefur þjálfað kvennalið SISU síðustu ár með frábærum árangri en lið hans hefur unnið tvöfalt undanfarin tvö tímabil og eru á leiðinni í Evrópukeppnina í vetur. Hrannar mun klára þetta tímabil með SISU áður en hann tekur til hendinni á nýjum vettvangi.