Hraðmót UMFN á Ljósanótt fjórða árið í röð
Körfuknattleiksdeild UMFN, í samvinnu við Ljósanæturnefnd í Reykjanesbæ, mun standa fyrir hraðmóti í körfuknattleik fyrir meistaraflokk kvenna. Þetta verður í fjórða skipti sem það er haldið.
Áætlað er að mótið fari fram dagana 31. ágúst – 2. september (miðvikudag – föstudag). Mótið er haldið fjórða árið í röð og segir Sigurður H. Ólafsson skipuleggjandi að vel hafi tekist til og vonandi sé þetta mót komið til að vera.
- Þátttökugjald er kr. 25.000,- pr. lið.
- Reiknað er með að leikirnir verða 4*8 mín. og klukkan stoppuð í vítum ásamt síðustu mínútunni í hverjum leikhluta.
- Líklegast tveir riðlar. Fjögur eða fimm lið í hvorum.
Skráning fer fram hjá Sigurði H. Ólafssyni
Gsm: 858 6020 - [email protected]
Mynd: umfn.is