HSS
HSS

Íþróttir

Mánudagur 3. apríl 2006 kl. 23:23

Hraðlestin af sporinu í Borgarnesi

Keflvíkingar fóru illa að ráði sínu í Borgarnesi í kvöld þegar þeir réttu Skallagrími sigurinn upp í hendurnar og þar af leiðandi oddaleik í undanúrslitarimmu liðanna í Iceland-Express-deildinni. Lokastaðan í leiknum var 94-85, sem er mikil viðsnúningur frá 50 stiga bursti meistaranna í 3. leik liðanna.

Leikurinn var jafn til að byrja með, en Skallagrímsmenn voru skrefinu á undan þar sem Dimitar Karadzovski fór fyrir sínum mönnum. Sverrir Þór Sverrisson kom hins vegar sterkur inn af bekknum og leiddi áhlaup Keflvíkinga undir lok fyrsta leikhluta. Eftir hann var staðan 23-22 og leikurinn galopinn.

Jovan Zdravevski hóf annan leikhluta með 2 stigum, en Gunnar Einarsson, fyrirliði meistaranna, tók þá á rás og skoraði 7 stig í röð án þess að heimamenn næðu að svara og breytti stöðunni í 28-31. Sverrir Þór Sverrisson, Magnús Gunnarsson og fleiri bættu í sarpinn og náðu Keflvíkingar mest 10 stiga forskoti, 33-43.

Keflvíkingar keyrðu upp hraðann í leiknum og réðu lögum og lofum á þessum kafla. Jovan og Dimitar neituðu þó að gefast upp og hittu úr mikilvægum 3ja stiga körfum og héldu sínum mönnum inni í leiknum. Staðan í hálfleik var 48-50 og ljóst að heimaliðið var ekki að fara að gefa sig átakalaust.

Vlad Boer hóf seinni hálfleik með miklum látum fyrir Keflvíkinga þar sem hann refsaði
George Byrd hvað eftir annað fyrir að fylgja sér ekki út úr teignum. Gestirnir unnu sig upp í 9 stiga forskot á ný, með snörpum sóknum og grimmri vörn, en sem fyrr voru Borgnesingar skammt undan og voru fimm stigum á eftir, 72-77, þegar haldið var inn í síðasta leikhluta.

Þar steyttu Keflvíkingar á skeri og áttu afleitan lokakafla. George Byrd kom Skallagrími yfir 80-78, en Keflvíkingar svöruðu með tveimur körfum og breyttu stöðunni í 80-82 þegar um 7 mínútur lifðu af leiknum.

Eftir það hægði mikið á leiknum og fátt var um fína drætti, en heimamenn mjötluðu stigunum inn á meðan ekkert gekk hjá Keflavík. Raunar skoruðu þeir bara eina körfu í viðbót utan af velli og var þar að verki AJ Moye sem átti óvenju rólegan dag með einungis 17 stig.

Keflvíkingar brotnuðu svo niður á lokakaflanum þar sem Jovan kom Skallagrími í 88-85 með 3ja stiga körfu. Hafþór Ingi Gunnarsson rak svo síðustu naglana í kistu meiataranna og tryggði sigur og oddaleik í Sláturhúsinu.
Bílakjarninn
Bílakjarninn