Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Hörkuleikur í Hólminum
Mánudagur 4. október 2010 kl. 08:40

Hörkuleikur í Hólminum


Grindavík og Snæfell mættust í Meistarakeppni KKÍ sem fram fór í Stykkishólmi í gær. Leikurinn var æsispennandi allan leiktímann en undir lokin náði lið Snæfells betri endaspretti sem skilaði þeim sjö stiga sigri, 100-93.
Stigahæstir í liði Grindavíkur voru Andre Smith með 23 stig og 10 fráköst. Páll Axel skoraði 19 stig og hirti 9 fráköst.

Allur aðgangseyrir frá leiknum rennur til Fjölskylduhjálpar Íslands

Mynd úr safni - Páll Axel Vilbergsson.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024